Við merkjum hvers kyns fatnað fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki hvort sem sá fatnaður er keyptur hjá okkur eða ekki. Merkingaraðferðir eru eftirfarandi; A) Útskornar merkingar, nöfn, númer eða auglýsingar sem hitaðar eru á fatnaðinn. B) Tölvuprentaðar litamerkingar sem hitaðar eru á fatnaðinn. C) Silkiprentun í einum lit eða fleirri. D) Myndsaumur; merki og nöfn eru saumuð beint í flíkurnar. E) Gufuprentun eða al-prentun bíður upp á heilprenta alla hönnun og hvers kyns merkingar í fullum litum á dúkinn sem síðan er sniðinn til og saumuð úr flík. Prentun þessi lætur ekki á sjá þrátt fyrir endalausa þvotta..