Henson er al-íslenskt fyrirtæki sem stofnað var 1969 og hefur alla tíð einbeitt sér að því að framleiða vandaða vöru úr bestu fáanlegum efnum. Starfsfólk fyrirtækisins skilur þarfir hins litla íslenska markaðar en fyrirtækið býr einnig yfir þeirri reynslu að takast á við vaxandi útflutning. Við erum stolt af því að þrjú félög sem orðið hafa Evrópumeistarar í knattspyrnu og handbolta hafa leikið í HENSON.
Notkun okkar á nýjustu prenttækni á fataefni gerir okkur fært að bjóða afburða fjölbreytni í sérframleiddum fatnaði til okkar viðskiptavina. Notandinn finnur ekki fyrir prentuninni sem andar öfugt við hefðbundna silkiprentun auk þess sem hún hvorki fölnar eða molnar þrátt fyrir ótal þvotta. Það eru engar hömlur á litadýrð í prentun hönnunar og merkja,nafna eða númera og við styðjumst við Pantone litakerfið. Framleiðsla á sýnishornum er auðveld og þegar rétta útlitinu hefur verið náð er það vistað og síðar meir framleiða þó ekki sé nema eitt stykki. Við vinnum eftir okkar hönnun eða ykkar.Samtvinnað með því nýjasta í míkróefnum bjóðum við þægilegan fatnað í skörpum fallegum litum eftir þínum óskum. Engar hömlur eru heldur á stærðum þar sem við framleiðum í stærðunum frá 80cm upp í xxx-l og eftir það með máltöku.