Fimleikar

Fimleikafatnað framleiðum við í mjög fjölbreyttu úrvali fyrir dömur og herra úr allra bestu efnum frá Ítalíu. Við vinnum útlitið í samvinnu við félögin og hópana sem panta og skiljum að magnið er misjafnt en alltaf jafn mikilvægt. Sýnishornin sem sýnd eru gefa hugmynd um möguleikana en nánast enginn endir er á möguleikum í útfærslum. Hin glæsilegu efni eru í nylon/lycra og velour/lycra. Hafið samband með ykkar hugmyndir og líkurnar á að við gætum mætt ykkar óskum er meiri en minni.